|
Tindastóll
(995m) er u.þ.b. 18 km langt og áberandi fjall norðan Sauðárkróks
við vestanverðan Skagafjörð.
Fyrrum kölluðu Laxdælir það Eilífsfjall og uppi á því er
tjörn sunnan Einhyrningsdals.
Þjóðsagan
segir, að óskasteinar fljóti upp í tjörninni hverja Jónsmessunótt,
en ekki eru allir, sem leggja leið sína þangað jafnheppnir.
Sagt er að stúlka ein hafi fundið einn slíkan án þess að
gera sér grein fyrir því.
Þar sem hún stóð þarna við tjörninga með steininn í
hendinni, varð henni á að óska þess, að hún væri kominn í dýrlegustu
veizlu í heimi.
Hún stóð skyndilega í fagurri höll og til hennar kom maður,
sem rétti henni gullbikar.
Hún tók við honum en var svo brugðið, að hún óskaði, að hún væri kominn til baka á
sama stað.
Hún fleygði steininum út í tjörnina til að hann villti ekki
um fyrir henni á ný.
Bikarinn afhenti hún prestinum og fékk þrjár jarðir í
Skagafirði að launum.
Flestir,
sem leggja á sig göngu upp á Tindastól, eru ekki endilega að leita
að óskasteinum, heldur að sameina útiveru og frábært útsýni af
fjallinu í góðu veðri.
Gangan á fjallið er nokkuð krefjandi.
Til að komast að góðri uppgöngu að sunnanverðu er ekið af
vegi 745 vestan við bæinn Skarð upp með Hraksíðuá að norðan.
Gangan hefst við Skógarhvamm eftir stikum að vörðu á
Einhyrningi suðaustast á fjallinu (795m).
Gönguvegalendin er u.þ.b. 6 km og hækkunin 650 m.
Göngutíminn gæti verið nærri 3½ klst.
Gönguskörð eru breiður dalur
norðvestan Sauðárkróks, milli Tindastóls og Molduxa (706m).
Hann klofnar í þrjár dældir. Hin nyrzta liggur til
Laxárdals. Miðdældin liggur til Kálfárdals og hin
syðsta til Víðidals. Gamlar og nýjar leiðir liggja um
þær allar. Gönguskarðsá (virkjuð) rennur til
Sauðárkróks. |