|
Tröllatunguheiði
er 400 m hár, sumarfær fjallvegur milli Geiradals í Austur-Barðastrandarsýslu
og Steingrímsfjarðar í Strandasýslu.
Heiðin er þakin grýttum melum, mýrum og vötnum.
Stærstu vötnin eru Miðheiðarvatn og Langavatn.
Miðheiðarborg
er mest áberandi á leiðinni og útsýni af háheiðinni er fagurt á
góðum degi.
Arnkötludalur er vestan heiðarinnar.
Þar eru rústir tveggja eyðibýla.
Vegalendin milli Gautadals í Geiradal og Tröllatungu í
Tungusveit við Steingrímsfjörð er u.þ.b. 23 km. |