|
Úthlíð
hét fyrrum Hlíð hin ytri og var kirkjustaður í Biskupstungum.
Ásgeir Úlfsson, tengdasonur Ketilbjarnar gamla á Mosfelli,
byggði þar bú. Hans
sonur var Geir goði, sem bjó líka í Úthlíð.
Haugur hans er sagður vera skammt frá bænum og þar móar
fyrir hoftótt niðri við mýrina neðan gamla bæjarins.
Stór grásteinn með laut er sagður vera hlautbolli úr hofinu.
Í
katólskum sið voru kirkjur staðarins helgaðar Maríu guðsmóður og
voru útkirkjur frá prestssetrinu í Miðdal í Laugardal þar til þær
urðu útkirkjur frá Torfastöðum með lögum árið 1880. Kirkjunni var þjónað frá Torfastöðum og Skálholti til
1963. Lengi var þjónað
í stofunni í Úthlíð eftir að kirkjan fauk 1936.
.
Nýja kirkjan
er hátíðleg og falleg og sést
langt að. Hún var reist árið
2005-2006 í minningu Ágústu Ólafsdóttur,
eiginkonu Björns Sigurðssonar bónda í Úthlíð.
Hún
lést fyrir aldur fram haustið 2004.
Úthlíð
er meðal stærstu jarða landsins.
Meginhluti lands hennar er Úthlíðarhraun úr Eldborgum á
Lambahrauni, sem steyptist niður hlíðina ofan við bæinn.
Þetta hraun
er gróið, mosi ofantil og kjarr neðar, þar sem sumarbústaðabyggðin er.
|