|
Veiðileysufjörður
er u.þ.b. 8 km langur til norðurs og allt að 2 km breiður og þarmeð
lengstur Jökulfjarða. Hann er girtur bröttum og hömróttum fjöllum og láglendi
er af skornum skammti. Kvíanúpur
og Kvíarfjall eru fremst austan hans og Lásafjall að vestan.
Gjálpardalur gengur inn í hálendið yzt að vestanverðu og þaðan
liggur gönguleið upp á Lásafjall.
Mardareyrarfjall er innan hans og undir því er Marðareyri.
Í hlíðinni ofan eyrarinnar er sagt vera bezta berjaland
landsins. Innst sveigir fjörðurinn til austurs. Meleyri er undir Lónahorni.
Þar voru hvalstöðvar í nokkur ár en engin vegsummerki eru
eftir þær. Fjallið Tafla
er fyrir botni fjarðarins og sunnan þess er
Karlsstaðadalur og í honum örnefnið Karlsstaðir, sem þykir benda til
búsetu fyrrum.
Djúpuhliðarfjall er utan dalsins, ofan og vestan Karlsstaða.
Undir því er Langeyri og rif út í fjörðinn.
Þar sem undirlendið er stærst, eru nokkur eyðibýli, s.s. Hlaðseyri,
Steig í Bæjardal, Marðareyri, og Steinólfsstaðir suðvestan Lónhorns.
Marðareyri
var nefnd eftir bóndanum Merði, sem sagt er frá í þjóðsögu um Bölt
nátttröll, sem rændi ungum manni, sem hann ætlaði dóttur sinni.
Dóttirin var ástfangin af tröllinu í Kálfatindum á
Hornbjargi og þýddist piltinn ekki.
Með fjölkyngi Marðar og aðstoð Steinólfs á Steinólfsstöðum
tókst að bjarga honum til mannheima á ný og tröllið varð að
steini í hlíðinni utan Seleyrar í Hesteyrarfirði. Mörður var heygður með dýrgripum sínum í Marðarhóli
nærri rústum bæjarins. Hólinn
má ekki nytja. Manni
nokkrum, sem var á ferð þarna, varð það á að tína ber á hólnum.
Kona hans ávítaði hann fyrir og á fyrsta vinnudegi eftir fríið
í Jökulfjörðum sagaði hann í hægri höndina og slasaði sig.
Gönguleiðir
Frá
Steig liggur leið upp á Kvíarfjall og niður Kvíardal að eyðibýlinu
Kvíum. Einnig er hægt að
ganga upp í Hafnarskarð.
Upp
úr fjarðarbotninum er líka leið upp um Hafnarskarð til Hornvíkur.
Þetta er greiðfær leið og fjölfarnari (519m).
Greiðfær
gönguleið liggur upp frá Steinólfsstöðum yfir í Hesteyrarfjörð.
Einnig er hægt að ganga þaðan upp í Hlöðuvíkurskarð til
Hlöðuvíkur. |