|
Yzt
við sunnanverðan Arnarfjörð eru Ystidalur og Miðdalur, sem saman
kallast Verdalir og Sandvík. Fyrr á öldum og fram á síðari hluta
19. aldar iðaði þar allt af lífi, í verbúðum Arnfirðinga.
Mikilvægur
þáttur í undirbúningi vertíðarinnar var að koma bátunum í gott
lag. Það var gert með því að bika þá að utan og innan með hrátjöru.
Árabátarnir voru merkileg smíð, flestir voru þeir sexæringar með
tvö möstur, framsegl, fokku og aftursegl. Þegar
veðrið var orðið gott var fatnaður, rúmföt, rúmstæði, veiðarfæri,
eldiviður, koffort og allt annað sem var nauðsynlegt verbúðarlífi
flutt á árabátunum yfir í verið. Þegar farmurinn var kominn yfir
í Verdali voru torfkofarnir þrifnir hátt og lágt og farangrinum komið
fyrir. Síðasta verkið í undirbúningsvinnunni var að ryðja
varirnar sem voru yfirleitt orðnar fullar af grjóti eftir vetrarbrimið.
Einn
unglingurinn sem réri frá verstöðinni í Verdölum á fyrri hluta
19. aldar varð síðar þekktur fræði- og stjórnmálamaður. Hét
hann Jón Sigurðsson og var fæddur á
Hrafnseyri
við Arnarfjörð. |