|
Víðimýrarkirkja (1834), sem er í eigu
Þjóðminjasafns, er „einn stílhreinasti og fegursti minjagripur
íslenzkrar gamallar byggingalistar, sem til er” að sögn Kristjáns
Eldjárns heitins, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands.
Timbrið í kirkjunni er rekaviður af Skaga og torfið úr landi
Víðimýrar. Innviðirnir eru að mestu upprunalegir en torfið hefur
verið endurnýjað.
Sáluhliðið með kirkjuklukkunum er á
upprunalegum stað. Í kirkjunni er að finna marga gamla muni úr eldri
kirkjum, s.s. predikunarstólinn, sem er mjög gamall. Altaristaflan er
dönsk frá árinu 1616. Fyrrum sátu konur norðan megin og karlar
sunnan megin í kirkjum landsins, hinir ríkustu innst og hinir
fátækustu fremst.
Húsbændur að Víðimýri
sátu inni við kór að norðanverðu. Víðimýri kemur við sögu í
Sturlungu, því að ein mesta höfðingjaætt landsins,
Ásbirningar bjó þar (Kolbeinn Tumason ; Kolbeinn Arnórsson
ungi).
Guðmundur biskup Arason þjónaði
þar um tíma áður en hann varð biskup með stuðningi Kolbeins Tumasonar,
sem síðar varð mesti andstæðingur hans og hrakti hann oft frá Hólum. |