|
Vogastapi
(80m) hét fyrrum Kvíguvogabjarg og Kvíguvogastapi og er stundum kallaður
Stapi.
Hann er á milli Voga og Njarðvíkur og þverhníptur í sjó
fram. Uppi
á Grímshóli, hæsta stað Stapans, er útsýnisskífa og útsýni
gott á góðum degi.
Sorpi af Keflavíkurvelli var löngum ekið út á Stapa og
sturtað niður í urðina.
Margir gramsarar fundu þar margt verðmætra og nýtilegra hluta.
Reykjanesbraut
liggur um undirhlíðar Stapans og enn þá verður næmt fólk, sem þar
er á ferðinni, vart við eitthvað óhreint.
Fyrrum fóru sumir ferðamenn sér að voða á leiðinni og
gengu jafnvel fyrir björg.
Eftir að bílvegurinn var lagður hafa sprottið upp alls konar
draugasögur, s.s. að farþegi hafi skyndilega verið kominn í aftursætið
eða gangandi vegfarandi hafi verið tekinn með á Stapanum og hann
skyndilega horfið úr bílunum.
Margir telja sig hafa séð þar mann á ferðinni með höfuðið
undir hendinni. (Atburðir á Stapa eftir Jón Dan).
Fiskislóðin
Gullskista er undir Stapanum.
Nafn hennar varð til vegna mikillar og góðrar veiði á þessum
miðum.
Til er þjóðsaga, sem segir frá göngum undir Reykjanes frá
Gullkistu til Grindavíkur, þar sem fiskur gekk greitt á milli.
Nokkrar verstöðvar voru undir stapanum á dögum árabátaútgerðarinnar
en ummerki þeirra eru óðum að hverfa.
Meðal þessara verstöðva var Hólmabúð, sem kennd var við hólma
skammt undan landi.
Haraldur Böðvarsson hafði aðstöðu í þessum hólma, þegar
hann byrjaði úrgerð sína á Suðurnesjum.
Síðar flutti hann starfsemina til Sandgerðis og endanlega til
Akranes, þar sem fyrirtækið er enn í dag.
Bandaríski
herinn byggði fullkomið sjúkrahús í suðurhlíðum Stapans í síðari
heimsstyrjöldinni en hann brann skömmu síðar.
Herinn byggði og rak líka mikilvæga fjarskiptastöð á
Stapanum og tóttir þess húss standa enn þá.
Uppi á efstu brúnum Stapans byggðu þeir vígi, þar sem þeir
gátu fylgzt vel með umferð á Faxaflóa sunnanverðum. |