|
Yztafell
er bær undir vestanverðu Kinnarfelli í Köldukinn.
Sigurður Jónsson (1852-1926), bóndi og alþingismaður, bjó
þar. Hann
var mesti forgöngumaður samvinnuhreyfingarinnar á landinu á sinni tíð
og Samband íslenzkra samvinnufélaga var stofnað að Yztafelli árið
1902. Steinsúla
stendur við bæinn til minningar um þann atburð.
Fornmannsleiði fannst nærri bænum árið 1917, þar sem bein
manns og hests voru uppgötvuð.
Í gröfinni fannst líka sérkennilega lagað spjót, sem er varðveitt
í Þjóðminjasafni.
Enginn,
sem fer fram hjá Yztafelli, kemst hjá að sjá mikinn fjölda farartækja
við bæinn.
Þarna er að finna flestar tegundir farartækja frá 20. öldinni,
s.s. skriðdreki, snjóbíll, dráttarvélar, vörubílar og ýmsir glæsivagnar.
Þarna var opnað samgönguminjasafn árið 2001 o g hluti þess
er í 600 m² sýningarsal, þar sem er líka hægt að skoða margs
konar vélar og vélahluta og stöðugt bætist í myndasafnið.
Sumarið 2008 bættist forsetabíll Vigdísar Finnbogadóttur í
safnið.
Símar:
464 3133 og 464 3343. |