|
Árnes er samheiti fyrir
eyju í Þjórsá, félagsheimili, byggð í kringum það og skóla við veginn
áleiðis til Gaukshöfða, Þjórsárdals og Búrfells í Gnúpverjahreppi. Á eyjunni
var áður þing sýslunnar, sem dregur nafn af henni, en hún var landföst áður
en kvísl úr Þjórsá sló sér austur fyrir hana. Enn þá sjást merki um
mannvirki þar, sem líkjast dómhring og örnefnin Þinghóll og Gálgaklettar
styrkja þessa kenningu. Í vesturkvíslinni, sem er vatnslítil, er Hestafoss
og í meginkvíslinni, hinni austari, er Búðafoss eða Búði við efsta hluta
Árnessins. Þar eru margar búðatóttir. Eyjan hefur
blásið mikið upp og er ekki nytjamikil. Minjar þar eru friðlýstar.
Skemmtileg og falleg hliðarleið liggur upp frá byggðinni, norðan Miðfells og
tengist aðalveginum aftur á móts við Hagaey í Þjórsá. Skammur vegur er þaðan
til Gaukshöfða og Þjórsárdals.
Vegalendin frá Reykjavík er 99 km.
Flúðir 24 km <Árnes>
Laugarás
19 km,
Sigalda 64 km.
.
|