Bakkafjörður,

Kirkjur Austurland


Gönguleiðir Ísland


Meira um Ísland

Myndaalbúm     English

BAKKAFJÖRÐUR
FERÐAVÍSIR

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Kauptúnið Höfn er yzt við Bakkafjörð austanverðan. Kauptúnið er yfirleitt nefnt Bakkafjörður og varð löggiltur verslunarstaður árið 1885. Atvinnulíf byggist að mestu á sjósókn en einnig þjónustu við Skeggjastaðahrepp. Gamla bryggjan á Bakkafirði var áður eina viðleguaðstaða báta en þá þurfti að taka á land eftir róðra því höfnin gefur lítið skjól. Þar stendur enn gamall krani, sem var notaður í því skyni. Ekið er fram hjá bænum Bakka þegar komið er ofan af Sandvíkurheiði í átt að Bakkafirði en þar bjó Afi á Knerri, aðalpersónan í Fjallkirkjunni eftir Gunnar Gunnarsson.  Í aprílbyrjun 2006 ákváðu íbúar Bakkafjarðar og Þórshafnar að sameina sveitarfélögin, þannig að framvegis telst kauptúnið með Norðurlandi. Vegalengdin frá Reykjavík er 663 km um Hvalfjarðargöng.

Þórshöfn 70 km.<Bakkafjörður> Vopnafjörður 36 km.

.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM