Bessastaðir,
reykjavik by night.JPG (7293 bytes)
Áhugaverðir staðir á Suðvesturlandi


Meira um Ísland


Gönguleiðir Ísland


BESSASTAÐIR
BESSASTAÐAHREPPUR

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Bessastaðahreppur er á Álftanesi og mörk hans eru þar sem nesið er mjóst á milli Skógtjarnar og Lambhúsatjarnar. Byggð hefur þanizt út á nesinu sl. 30 ár. Nesið er gósenland fyrir fuglaskoðara. Bessastaða er fyrst getið í Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar, þá í eigu Snorra Sturlusonar. Að honum látnum urðu Bessastaðir fyrsta jörðin á Íslandi í konungseign. Þar varð brátt höfuðsetur æðstu valdamanna konungs hér á landi og var svo til loka 18. aldar.

Sigurður Jónsson (1896-1965), forstjóri í Reykjavík,gaf íslenzka ríkinu staðinn til búsetu fyrir ríkisstjóra vorið 1941. Síðan hafa forsetar landsins haft aðsetur þar. Kirkjur hafa staðið á Bessastöðum síðan árið 1000. Elztu heimildir um kirkju þar eru frá árinu 1200. Það tók u.þ.b. 20 ár að byggja núverandi kirkju og hún var vígð 1796. Hún er meðal elztu steinbygginga landsins.

.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM