Bíldudalur,

Gönguleiðir á Íslandi


Kirkjur Vestfirðir


Veður og færð


Meira um Ísland

Myndir frá Vestfjörðum

BÍLDUDALUR
FERÐAVÍSIR

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Bíldudalur er kauptún utarlega við Bíldudalsvog, sem gengur inn úr Arnarfirði. Verslun hófst snemma á Bíldudal og settu margir merkir athafnamenn merki sitt á staðinn og má sjá þar mörg hús frá 19. öld, sem tengdust verslun og fiskvinnslu, og er hvorttveggja stundað þar enn í dag. Ýmis afþreying stendur til boða, t.d. golf o.fl. Þar er eitt af elztu húsum landsins, pakkhús frá því fyrir miðja 18. öld.

Útgerð og fiskvinnsla er hér sem annarsstaður á Vestfjörðum helzti atvinnuvegurinn, en þjónusta við ferðamenn eykst og stendur nú margt til boða og má þar telja meðal margs annars, ökuferð upp á Sandafell til að njóta stórfenglegs útsýnis. Dalir skera þar tilkomumikil fjöll og helstan má nefna Haukadal en við hann er Kaldbakur hæsta fjall Vestfjarða.Vegalengdin frá Reykjavík er 405 km um Hvalfjarðargöng.

Tálknafjörður 18 km <Bíldudalur> Þingeyri 96 km.
.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM