|
Bláa lónið gamla myndaðist vegna
frárennslis frá orkuverinu í Svartsengi og varð einhver
fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Ný þjónustumiðstöð,
stærri og betri var tekin í notkun í júní 1999. Æ fleiri gestir heimsækja það árlega og vegna sérstöðu sinnar nýtur það
mikillar hylli fjölmiðlafólks um allan heim. Fljótlega eftir að fólk fór að sækja í
Bláa Lónið kom í ljós, að vatnið í því virkar mjög vel til að lina þjáningar
þeirra, sem þjást af húðsjúkdómum (psoriasis) og þar er sérstök aðstaða
fyrir þá. Sjúklingarnir koma
víða að úr heiminum til að njóta lækningarmáttar lónsins. Góð þjónusta er
við ferðamenn við Bláa lónið og er þar gott hótel og veitingahús ásamt
miðstöð upplýsinga, snyrtivöru- og minjagripasölu.
Bláa lónið nánar
Grindavík
4 km, <Bláa lónið> Keflavík 16 km,
Reykjavík
48 km
.
|