|
Bolungarvík er kaupstaður við utanvert Ísafjarðardjúp og tengist Ísafirði með
Óshlíðarvegi, sem þótti mikil framkvæmd um miðja öldina. Útræði hefur verið stundað þar allt frá
landnámsöld og er Bolungarvík ein af merkustu verstöðvum landsins.
Vinsælt er að aka um 12
km. langan fjallveg til Skálavíkur og njóta náttúrufegurðar og berja
miðnætursólina augum. Eftirlíking gamallar verbúðar var reist skammt
sunnan bæjarins og þar er gaman að staldra við og hverfa aftur í tímann
(Ósvör). Reglulegar ferðir til Hornstranda eru í boði frá Bolungarvík
sem og önnur fjölbreytt afþreying fyrir ferðamenn.
Vegalengdin frá Reykjavík er 509 km um
Hvalfjarðargöng.
Bolungarvík > Ísafjörður 15 km.
.
|