Borgarnes,
Áhugaverðir staðir á Vesturlandi


Þjóðgarðurinn 
Snæfellsjökull


Meira um Ísland


Gönguleiðir Ísland

Vegamyndavél Holtavörðuheiði Vegag.
Hraði ökutækja
Vegag.
Bil milli bíla
 

BORGARNES
FERÐAVÍSIR

.


[Flag of the United Kingdom]
In English


Kirkjur Vesturland


Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

 

Stækka kort - Enlarge Map! Borgarnes og nokkur sveitarfélög í Mýrarsýslu sameinuðust fyrir nokkru undir nafninu Borgarbyggð. Borgarnes er í landi Borgar á Mýrum og hét áður Digranes samkvæmt Egilssögu. Fram af Borgarnesi er Brákarey. Hún er tengd við land með brú yfir Brákarsund, en sundið er kennt við Þorgerði brák, ambátt Skallagríms, en hann banaði henni þar með steinkasti. Borgarnes er af mörgum talinn einn af vinalegustu þéttbýilisstöðum landsins. Þar er Skallagrímsgarður, fallegur skrúðgarður, og innan hans er m.a. minnismerki, sem sýnir Egil Skallagrímsson flytja son sinn heim andvana. Borgarbyggð býður upp á margt áhugavert, s.s. golf, veiðar, góðar sundlaugar, hótel, gistiheimili og tjaldstæði. Náttúrufegurð þar er viðbrugðið og fjölmargir sögufrægir staðir eru innan Borgarbyggðar og nágrennis,hverir, falleg stöðuvötn, bergvatnsár og jökulsá, og einstakir fossar, svo fátt eitt sér nefnt.

Seleyri er sunnan brúarendans gegnt Borgarnesi.  Þar voru kaupstefnur haust og vor eða útibú frá verzlunum í Borgarnesi fyrir bændur í sunnanverðum Borgarfirði.  Um Seleyrina og undir brúnni eru leiðslur fyrir heitt (Deildartunguhver) og kalt vatn (úr Hafnarfjalli).

Arnarstapi 106 km. Stykkishólmur 98 km. Búðardalur 80 km um Bröttubrekku. Bifröst 32 km. <Borgarnes>  Reykholt 37 um Hvítársíðu, Reykjavík 74 km.
.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM