|
Þessar
Akureyjar eru í Helgafellssveit í Snæfellsnessýslu en eru samnefndar eyjaklasa undan
Skarðsströnd, sem er mun þekktari. Talsverð hlunnindi voru og eru þar af fugli, fjöru og
fiski og þar voru verstöðvar fyrir 1700.
Þaðan er elzti varðveitti bátur með breiðfirzku lagi. Samkvæmt Heiðarvígasögu sló Víga-Styr eign sinni á
Akureyjar með dólgsskap og fölskum sökum.
Árið 1360 voru eyjarnar í eigu Helgafellsklausturs.
Árið 1702 áttu 16 manns heima í Akureyjum og þar voru 8
nautgripir og 9 kindur. Tíu
manns bjuggu þar á árunum 1890-1920 og síðustu ábúendur fóru þaðan
1952. Nafn eyjanna gefur
til kynna akuryrkju og e.t.v. hefur Björn austræni eða afkomendur
hans ræktað þar korn. Óljósar
menjar um akurgerði eru milli Norður- og Suðurhöfða og suðvestan Fótabarðs
eru merki um akra.
Skeley
er sunnan Bæjarvogsins. Þar voru tvær hjáleigur eða búðir um 1700 og voru líklega
fleiri fyrrum.
Fáskrúð
er gróðursnauð eyja 2½ km norðan Akureyja og 2 km norðar er hólmi,
sem heitir Gagnsleysa. Fjórum
km norðaustar er einhver fjölsóttasta verstöð í sunnanverðum Breiðafirði
fyrrum, Höskuldsey. |