|
Brokey,
mikil hlunnindajörð, er stærst Breiðarfjarðareyja.
Þar bjó Jón Pétursson, fálkafangari, (1584-1667).
Hann sigldi víða á yngri árum og kunni þýzku, dönsku og
ensku, sem var fátítt.Hann hlúði að og nýtti æðarvarp í eynni
og var frumkvöðull að dúnhreinsun og útflutingi hans.
Hann eignaðist 30 börn, hið síðasta, þegar hann var á níræðisaldri.
Hans
Becker, danskur maður, bjó þar og var gerður að lögmanni Norður-
og Vesturlands á
f.hl. 18. aldar.
Hann samdi m.a. ritgerð um viðreisn Íslands.
Leifar kornmyllu, sem Vigfús Hjaltalín setti þarna upp, sjást
enn þá. |