|

Þórishólmi
er þrjá km sunnan Bíldseyjar og hann er áberandi frá Stykkishólmi.
Hann er 22 m hár.
Þjóðsagan í bókum Jóns Árnasonar nefnir hann Þóruhólma.
Hún fjallar um Jón Sigurðsson á Dældarkoti í
Helgafellssveit, sem dró gjafvaxta mey upp á öngli, sem hafði krækzt
undir belti hennar.
Hún sagðist heita Þóra og vera sækona.
Hún vildi komast aftur til heimkynna sinna en Jón leit hana hýru
auga og vildi halda henni.
Hún sættist á að vera með honum í þrjá vetur, ef hann
sleppti henni aftur á sama miði.
Þau stóðu bæði við sitt og þeim fæddist dóttir, sem hét
Þórunn.
Hún bjó síðar í Elliðaey og sat þar löngum á bergsillum
og span í sjóinn.
Silunga-Björn er sagður vera eitt barna hennar.
Sagt
er að Guðmundur skáld Bergþórsson, sem bjó á Arnarstapa í
kringum 1700 hafi fengið margar skræður frá honum. |