|

Búrfell
er 669 metra hár móbergstapi í
Þjórsárdal. (Það er til nokkrar skýringar
á nafninu og er ein sú að það tengist
matargeymslu)
Fjallið hefur myndast undir jökli ísaldar og er annar
útvörður Þjórsárdals.
Þjórsá rennur austan með fjallinu og við suðurenda þess
eru fossarnir
Tröllkonuhlaup
og
Þjófafoss í ánni. Nú hefur Þjórsá verið virkjuð við
Búrfell og er svokallað Bjarnalón norðaustan við fjallið.
Fallorkan nýtist í Búrfellsvirkjun.
Búrfell er bratt á alla kanta, þó síst að norðan en þar
liggur vegur upp á topp fjallsins. Þar er endurvarpsstöð
fyrir farsíma. Við suðurenda fjallsins er öxl nokkur skógi
vaxin og kallast þessi birkiskógur Búrfellsskógur. Gnúpverjar
hafa í gegnum aldirnar haft skógarítök í Búrfellsskógi.
Kristinn Jónsson, frá Úlfsá í Eyjafirði, sem gekk villu
vegar suður Sprengisand árið 1889 fannst í Búrfellsskógi af
Skriðufellsbændum sem voru við skógarhögg. |