
Hvernig væri að stikla um landið á haghvæman hátt frá Reykjavík um
Kjalveg til Akureyrar og stanza, þar sem hugurinn girnist og njóta umhverfis og
aðbúnaðar um tíma. Þegar því er lokið er stokkið um borð aftur og haldið á vit
frekari ævintýra. Það kemur verulega á óvart hvað er í
boði á hinum fjölmörgu stöðum, sem áætlunarbílarnir fara um. Það er hægt að
velja fjölda annarra áætlunarleiða, s.s. í Þórsmörk, í Lakagíga frá Klaustri og
Skaftafelli og jafnvel allan hringveginn. Þú stoppar þar sem þú óskar eins lengi og
áætlunin segir til um. |