|
Sprungusveimur
Dyngjuháls er lítt kannaður en er talinn vera u.þ.b. 10 km breiður
og 25-50 km langur um Trölladyngju allt að Dyngjufjöllum.
Hann teygist undir vesturhluta Dyngjujökuls í átt að Bárðarbungu.
Eftir hálsinum endilöngum liggja e.t.v. átta gígaraðir, þannig að
þetta litla svæði mun vera hið eldbrunnasta á landinu.
Eldsprungurnar
á Dyngjuhálsi eru 5-10 km langar og framhald þeirra er að finna norðan
Trölladyngju. Frá þessum
sprungum hafa runnið hraun suðvestur í Vonarskarð og norður með
Skjálfandafljóti niður í Marteinsflæðu og Hraunárdal.
Mest ber á stórum og smáum gjallgígum.
Athuganir hafa leitt í ljós öskulög frá þessu svæði víða um land,
þannig að hægt er að skjóta stoðum undir eldvirkni á nútíma og
sögulegum tíma.
Gígurinn Kattarbúðir á myndinni hér að ofan hvarf, þegar
Dyngjujökull gekk fram í kringum 1980. Baldur Sigurðsson frá
Akureyri, sem gerði út snjóbíla frá Gæsavötnum bjó í tjaldi
inni í honum áður en byggingu skálans við Gæsavötn lauk.
Mynd: Gígurinn Kattarbúðir (horfinn).
Meira |