|
Eskifjörður varð löggiltur
verzlunarstaður árið 1786 og hefur
verið það samfleytt frá 1798, þegar
danska fyrirtækið Örum & Wulff hófu verzlun hérlendis.
Kaupmennirnir létu reisa verslunarhúsið Gömlubúð árið
1816 og stendur það enn og hýsir nú Sjóminjasafn Austurlands.
Sýslumannsembætti hefur verið á Eskifirði samfellt frá árinu 1853. Margir
áhugaverðir staðir eru við Reyðarfjörð og má þar nefna Helgustaðanámur, beztu
silfurbergsnáma landsins í nær fjórar aldir. Silfurberg var sótt
í námurnar allt fram á fyrri hluta
20. aldar. Einn veggja frystihússins á
Eskifirði er skreyttur málverki eftir katalónsk-íslenzka listamanninn
Baltasar. Hólmatindur
(985m) er eitt af tignarlegustu fjöllum
við Reyðarfjörð en framundan honum gengur Hólmaháls fram á Hólmanes, sem er
fólkvangur. Hólmatindur skyggir á sól lengi vetrar. Mikil útgerð og fiskvinnsla er uppistaða atvinnulífs og
hafa fyrirtæki í þeim greinum verið í fararbroddi á mörgum sviðum
í áratugi.
Vegalengdin frá Reykjavík er 703 km um Suðurland.
Neskaupsstaður 23 km
<Eskifjörður>
Reyðarfjörður 15 km.
.
|