|
Grótta
er yzti hluti Seltjarnarness.
Hún er í rauninni eyja, sem tengist landi með flæðigranda.
Þar var fyrrum bær og viti, sem var byggður 1897 og endurbyggður
1947 og haldið við síðan.
Björgunarsveit Slysavarnarfélagsins á Seltjarnarnesi var skírð
eftir Albert Þorsteinssyni (1910-1973), sem var lengi vitavörður í
Gróttu.
Fyrrum var útræði talsvert frá Gróttu og þaðan fórust
skip eins og annars staðar. Eftirfarandi visa heyrðist eitt sinn kveðin
á glugga eftir skipskaða:
Dauðinn
sótti sjávardrótt,
sog var ljótt í dröngum.
Ekki er rótt að eiga nótt
undir Gróttutöngum.
Fuglalíf
er fjölbreytt í eyjunni og umhverfis hana og stundum sjást selir
fyrir landi.
Landsig á þessum slóðum er áberandi, þannig að hægt er að
fylgjast með gróðurlendi fara smám saman undir sjó.
Í næsta nágrenni er golfvöllur Golfklúbbsins Ness og
stefnuviti fyrir flugbraut 31/13.
Grótta var friðlýst árið 1974. |