|
Hveravellir er mjög áhugavert jarðhitasvæði, sem kúrir
í lægð norðan
undir Kjalhrauni. Þar er vinsæll viðkomustaður ferðamanna, sem baða sig gjarnan í
uppbyggðri laug, skoða hverasvæðið og rústir kofa Fjalla-Eyvindar rétt hjá.
Kjalvegur hinn forni lá um svæðið og líklegt er talið, að lægðin
sé hinn forni Hvinverjadalur, sem nefndur er í Landnámu og Sturlungu.
Norðan lægðarinnar er Breiðimelur með
veðurathugunarstöð, sem var reist 1965. Helztu hverirnir á svæðinu heita Öskurhólshver, Eyvindarhver, Bláhver,
Bræðrahverir og Gamli strokkur. Tréstígur liggur um svæðið og
ætlast er til að fólk haldi sig á honum vegna hinna fögru og stöllóttu
kísilúrfellinga, sem þola ekki ágang. Þar
finnst víða fjöldi skelja kísilþörunga, sem lifa í volgu
hveravatninu. Hveravellir voru friðlýstir sem
náttúruvætti árið 1960. Jarðhitinn er
ekki einungis bundinn aðalhverasvæðinu, heldur má sjá gufu stíga upp úr sprungum í norðanverðu
Kjalhrauni. Gamla Ferðafélagshúsið er frá 1938 en hið nýja frá 1980.
Svínavatnshreppur keypti aðstöðu Ferðafélagsins árið 2002. Hveravellir
er sumarviðkomustaður SBA-Norðurleiðar.
Mjög skemmtileg gönguleið er milli Hveravalla og Hvítárness.
Hvítárnes
53 km <Hveravellir>
Blönduvirkjun
37 km, Varmahlíð
108 km, Blönduós 106 km. |