|
SUÐVESTURLAND
FERÐAVÍSIR










 









Víkingaskipið Íslendingur
safn & saga

.Landrek
og brú á milli heimsálfa

Fuglar
Suðvesturland

Jarðfræði
Suðvesturland
|
SUÐVESTURLAND
FERÐAVÍSIR

.Smellið
músini á
staðina á kortinu til að fá nánari upplýsingar!

Staðirnir á
ferðavísinum birtast frá Reykjavík til Grindavíkur
|
Mörk þessa svæðis eru hér dregin frá
botni Hvalfjarðar og vestan Þingvallavatns til sjávar við rætur
Reykjness. Þéttbýlis- og merkisstaða og afþreyingar innan svæðis
er sérstaklega getið neðan við sérkort á Ferðavísinum.
Suðvesturland er þéttbýlasti hluti landsins. Þar búa næstum 75%
íbúa landsins. Landslag er tiltölulega láglent á Reykjanesi og
með ströndum fram, en það hækkar og láglendi minnkar, er norðar
dregur. Norðan til er þetta landsvæði hluti af vestara
blágrýtissvæði landsins en móbergs- og ríólítfjöll og
hraunbreiður skiptast á annars staðar. Víða er að finna
skoðunarverðar náttúruperlur og sögustaði. Atvinnulíf er
fjölskrúðugra og tryggara á Suðvesturlandi en víðast annars
staðar á landinu. Þessi landshluti kemur víða við í
Íslandssögum, s.s. í Landnámu, Sturlungu og Gunnlaugssögu. Þróun
byggðar er hægt að rekja til fyrsta landnáms norrænna manna til
okkar tíma. Samgöngur innan svæðisins og milli þess og annarra
landshluta eru betri en annars staðar á landinu
allt árið. Hvergi annars staðar á landinu er boðin
fjölbreyttari og tryggari afþreying allt árið en á
Suðvesturlandi, þótt sumt þurfi að sækja út fyrir mörkin.
|
Vesturland
<
Suðvesturland
>
Suðurland
Hálendið

 |
![[Flag of the United Kingdom]](../images/england_flag.jpg)
In English

Hvalir

Súluvarp
Eldey
xxx |