|
Óreglulegt flug var stundað til Eigilsstaða fram á sjötta áragtuginn og
lent á túnum á Egilsstaðnanesi eða á Lagarfljóti. Árið 1951 hófust
framkvæmdir við gerð malarbrautar á Egilsstaðanesin. Hún var fullgerð
1953 og áætlunarflug hófst frá Reykjavík 1955, þegar ljósabúnaði hafði
verið komið fyrir (1954). Brautin varð 1383 m löng og 45 m breið.
Aðflug var fremur erfitt vegna fjallanna í grenndinni. Þessi braut var
í notkun þar til ný var byggð. Hún var opnuð umferð 23. september
1993. Staðsetning hennar var miðuð við hindrunarlaust aðflug og strax
var gert ráð fyrir lengingu hennar síðar. Yfirborðslag hennar er 10 sm
þykkt malbik. Flugvöllurinn er aðalflugvöllur Austurlands og
varaflugvöllur í millilandaflugi. Fyrsti umsjónarmaður hans var ráðinn
árið 1950. |