|
Grenivík
er kauptún í Grýtubakkahreppi austan Eyjafjarðar og norðan Dalsmynnis.
Samkvæmt Landnámu nam maður að nafni Þormóður land á þessum
slóðum. Kaldbakur er á aðra hönd en Þengilhöfði á hina og láglendið
Höfðahverfi frá víkinni suður að Fnjóská er þéttbýlt og búsældarlegt.
Ofan kauptúnsins er hólaþyrping gamalla
ísaldarruðninga. Þegar
á öðrum áratugi 20. aldar var komin byggð á Grenivík og 15-20 hús
árið 1935. Þarna lifði fólk
af sjó og landi en erfitt var um vik á veturna, því að hafnarskilyrði
voru bág. Reynt var að reka lifrarbræðslu 1930-1940 en hún bar sig
illa. Höfn var ekki gerð
fyrr en árið 1965 og þá fjölgaði íbúum í kjölfarið.
KEA rak sláturhús frá árinu 1916 og verzlun frá 1930.
Grenivíkursókn er þjónað frá Laufási.
Dalsmynni tengir Eyjafjörð við Fnjóskadal skammt norðan
Laufáss og sunna Grenivíkur. Það er skarð, sem Fnjóská hefur
breikkað og beggja vegna þess eru 800-1000 m há fjöll. Fossarnir í
ánni voru gerðir laxgengir. Á veturna er Dalsmynni oft eina færa
leiðin milli landshluta, en þó verður að gefa snjóflóðahættu gaum.
Vegalendin frá Reykjavík er u.þ.b.
427 km um Hvalfjarðargöng.
Húsavík
108 km. um Dalsmynni <Grenivík>
Akureyri
38 km.
.
|