|
Aðalatvinnuvegir í hreppnum eru landbúnaður, þjónusta við íbúa og sumargesti
og ferðaþjónusta í vaxandi mæli. Einnig hafa nokkrir atvinnu við Sogsvirkjanirnar,
en þar hefur myndast lítið þéttbýli og anga af slíku er að finna við Borg. Þar
var fyrst skóli og síðar félagsheimili og verzlun. Stærsti byggðarkjarninn er að
Sólheimum, þar sem u.þ.b. þriðjungur íbúa sveitarfélagsins
býr.
Kirkjur eru á Mosfelli, Stóru-Borg og Búrfelli auk kapellu á Sólheimum.
Jarðhiti
hefur fundizt á nokkrum stöðum með borunum og notendum hitaveitu fer
fjölgandi í sveitinni. Fiskeldi, iðnaður og gróðurhúsarækt eflast
smám saman. Sumarhúsabyggðin í Grímsnesi er hin stærsta á landinu og
þenst stöðugt út. Kunnustu staðir sveitarinnar eru Kerið,
Seyðishólar, Þrastarskógur og virkjanir við Sogið. Kerið og Kerhóll
auk svæða við neðri hluta Sogsins, sem eru á náttúruminjaskrá.
Sólheimar.
Segja má, að eina alvöruþéttbýli Grímsness sé að Sólheimum. Þar býr
u.þ.b. þriðjungur íbúa sveitarfélagsins. Þar eru starfrækt a.m.k. fimm
fyrirtæki og fjögur verkstæði. Þar hófst fyrst lífræn ræktun á
Norðurlöndum. Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir (1902-1974) stofnaði
Sólheima 5. júlí 1930 sem barnaheimili og síðar jafnframt miðstöð
þjónustu við fatlaða. Sesselja var ekki einungis brautryðjandi í
málefnum fatlaðra á Íslandi, heldur í öllum heiminum með stefnu sinni um
blöndun (samskipan) fatlaðra og ófatlaðra.
Sólheimar eru fyrsti staðurinn í heiminum, þar sem þjónusta við fatlaða
er veitt utan stofnana og vistheimila og fatlaðir og ófatlaðir búa saman
og deila kjörum. Í apríl 1997 voru Sólheimar útnefndir fyrsta sjálfbæra
byggðahverfið á Ísland af alþjóðasamtökunum „Global Eco-village
Network”.
Á Sólheimum er m.a. verzlunin Vala og listhús, skógræktarstöðin Ölur,
garðyrkjustöðin Sunna, Kertagerð Sólheima, hljóðfærasmiðja,
leikfangasmiðja, vefstofa, listasmiðja og gistiheimilið Brekkukot, sem
er opið allt árið, auk Sólheimabúsins. Á staðnum er m.a. sundlaug og
íþróttaleikhús.
Gönguleiðir eru víða í Grímsnesi, s.s. meðfram
Soginu, á Búrfell, að Hestvatni og á Hestfjall.
Selfoss 22
km <Minniborg>
Laugarvatn 17 km,
Skálholt 19 km.
|