|
Sagan
af því, þegar Þóroddur Guðbrandsson í
Brattholti óð yfir Hvítá fyrir ofan Gullfoss á fund Guðrúnar
Þóroddsdóttur í Hamarsholti (nú í eyði) í Hrunamannahreppi,
er fræg. Þau höfðu oft hitzt og talazt
við yfir ána og loks bað Þórður Guðrúnar. Hún
kvaðst taka bónorði hans, kæmi hann til hennar
yfir ána. Hann tók áskoruninni og óð strax
yfir ána til hennar. Þau giftust og bjuggu
síðar á Fjalli á Skeiðum. Meðal afkomenda þeirra var
Jón Thoroddsen skáld og Guðmundur Ingimarsson í Birtingaholti. Ekki eru
til heimildir um að Hvítá hafi áður
verið vaðin á þessum stað. Tómas, faðir hinnar
frægu Sigríðar í Brattholti, óð þarna út í ána
við annan mann. Þeir voru komnir yfir dýpsta álinn,
þegar hundar þeirra á vesturbakkanum gerðust þá svo ókyrrir,
að þeir þorðu ekki annað en snúa við til að fyrirbyggja að þeir æddu
út í ána og drukknuðu. Á
fjórða áratugi 20. aldar reið Magnús
Sigurðsson frá Bryðjuholti yfir Hvítá ofan Gullfoss.
Heimildir: Vefur Hrunamannahrepps. |