|
Hafnir, Keflavík og Njarðvík runnu saman í eitt sveitarfélag og nefnast
nú einu nafni Reykjanesbær. Hafnir eru annað landstærsta sveitarfélagið á
Reykjanesi en byggð þar er fámenn nú miðað við það sem áður var.
Árið 1881 (26. júní) rak mannlaust
timburskip, Jamestown, upp við við Hvalsnes á
milli Hestakletts og Þórshafnar í Ósunum gegnt Kotvogi.
Það var mannlaust og virtist hafa verið lengi á reki, því að reiði og
seglbúnaður var horfinn. Fjölmargir
húsbyggjendur á Suðvesturlandi nutu góðs af timburfarmi skipsins
(sjá
Sandgerði) og akkeri skipsins
er nú varðveitt
framan við fyrrum sæfiskasafn í Höfnum
við Nesveg.
Hafnaberg er suður af Höfnum og er þar skemmtileg og vel vörðuð gönguleið en
þar eru nokkrir af beztu stöðum til fuglaskoðunar á
landinu. Frá Hafnabergi má einnig oft sjá smáhveli í
ætisleit rétt við landsteina.
Gönguleiðir liggja vítt og breitt umhverfis
Hafnir. Þaðan er hægt að ganga út á Reykjanestá, skoða fugla,
gíga, háhitasvæði og önnur náttúruundur. Svo er vesturendi
Reykjavegarins eftir Reykjanesinu endilöngu til Nesjavalla rétt hjá.
.
|