|
Hella á Rangárvöllum er kauptún á bökkum
Ytri-Rangár. Þorpið byggðist upp á þjónustu við landbúnaðinn og þar er nú
verzlun, iðnaður og góð ferðaþjónusta. Aðstaða er þar til fyrirmyndar
fyrir hestamenn á Gaddstaðaflötum og þykir mikil upplifun að vera þar á
hestamannamóti. Þar er haldin mikil fjölskylduhátíð
„Töðugjöld” í júlí ár hvert. Hella er á „Njáluslóð”, mikið um merka
sögustaði úr Njálu í grenndinni og boðið er upp á ferðir á Njáluslóðir með
góðri leiðsögn frá Njálusetrinu á Hvolsvelli.
Dagana 17. og 21. júní
árið 2000 riðu yfir
jarðskjálftar, sem áttu upptök rétt norður
af Hellu,norðantil í Landsveit og rétt við vegamót Skeiða
og þjóðvegar #1. Nokkrar skemmdir urðu á mannvirkjum,
u.þ.b. 40 hús gjöreyðilögðust en ekkert manntjón
varð. Skjálftarnir mældust 6.5 stig á Richter.
Rangárnar eru með fengsælustu
laxveiðiám landsins og eru leyfi til veiða í þeim seld við verði sem
flestir ráða við.
Góður flugvöllur er við Hellu og halda svifflugmenn gjarnan landsmót sín þar enda
aðstaða til svifflugs afar góð. Hótel- og gistiaðstaða er góð á Hellu og
fjölbreyttar veitingar í boði.
Vegalengdin frá Reykjavík er 94 km.
36 km
Selfoss <Hella>
Hvolsvöllur
13 km Sigalda
96 km.
.
|