|
Hellnar
eru lítið sjávarpláss vestan Arnarstapa. Þar var fyrrum einhver stærsta
verstöð á Snæfellsnesi, nokkur grasbýli og 32 þurrabúðir. Íbúarnir þar
stunda nú vor- og sumarútgerð á smábátum. Meðfram ströndinni eru
fallegar bergmyndanir og hellir, sem heitir Baðstofa. Hann er kunnur
fyrir birtu- og litbrigði við vissar aðstæður.
Einnig er þar Gvendarbrunnur (sem einnig hefur verið
kallaður Maríulind á síðustu árum), bergvatnslind, sem sprettur undan
hraunjaðrinum í túni Skjaldartraðar. Þar hafa sumir, sem vita lengra en
nef þeirra nær, séð heilagri guðsmóður bregða fyrir.
Hellnar eru í næsta nábýli við nýjasta þjóðgarðinn okkar, Snæfellsjökul,
í u.þ.b. 6 km fjarlægð. Á Hellnum er gestastofa þjóðgarðsins með mjög
áhugaverða sýningu um atvinnulíf fyrri tíma, jarðfræði, gróðurfar og
dýralíf þjóðgarsins. Þjóðgarðsverðir bjóða gjarna upp á gönguferðir með
leiðsögu.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 196
km um Hvalfjarðargöng.
Hellissandur
30 km <Hellnar>
Arnarstapi 8 km,
Búðir 26 km,
Borgarnes
134 km.
.
|