|
Austan Dyngjufjalla í Ódáðahrauni rís rofinn fjallgarður, syðst
Herðubreiðartögl, svo Herðubreið og norðan hennar Herðubreiðarfjöll með tindinum
Eggert, Hrúthálsum og Gjáfjöllum. Herðubreið er áberandi og fallegt stapafjall
(1682m) með allstóran gíg á kolli. Hún rís 1000-1100 m yfir umhverfið, snarbrött
með hamrabelti efst. Ummál grunnflatarins er 8-9 km. Hátindurinn, sem er hæsti
hluti gígsins, er á fjallinu suðaustanverðu. Útsýni er geysileg af tindinum í
góðu veðri. Þaðan
sést til sjávar allt í kringum landið á
góðum degi. Eina velfæra leiðin
upp fjallið er að norðvestanverðu. Þar eru skriðurnar og móbergshellan á
leiðinni talsvert brattar, svo að bezt er að halda hópinn vel.
Talið er að fjallið hafi fyrst verið klifið
13. ágúst 1908. Herðubreið og nágrenni hennar var friðlýst
1974. Herðubreiðarlindir og Grafarlönd eystri eru
innan friðlandsins. Herðubreiðarlindir eru ein fegursta
hálendisvin landsins. Þær eru 5-6 km norðaustan Herðubreiðar, u.þ.b. 60 km sunnan
þjóðvegarins á Mývatnsöræfum. Fjöldi linda kemur upp undan hraunjaðri
Ódáðahrauns og myndar Lindaá, sem fellur til Jökulsár á Fjöllum 10 km
norðar.
Á þremur smávötnum sunnan Lindanna
eru oftast álftir, endur og jafnvel himbrimar á sumrin.
Gróðursæld umhverfis þau og við Lindaá er mikil.
Gulvíðir, hvönn og sóleyjar eru meðal 72 tegunda jurta, sem hafa fundizt
þar. Ferðafélag Akureyrar reisti Þorsteinsskála þar árið 1960. Talið er
að Fjalla-Eyvindur hafi búið í Lindunumm einn vetur. Vegur var ruddur þangað
árin 1938-39.
Herðubreiðarfjöll eru norðan Herðubreiðar. Syðst
þeirra er Eggert (1332m), sem Þorvaldur Thoroddsen gaf nafn E. Ólafssonar.
Hann er sundursprungið móbergsfjall norðaustan Kollóttudyngju. Á
fjallinu vestanverðu er mikill gjallgígur auk fleiri á sömu sprungu.
Það er bratt en ekki erfitt uppgöngu. Norðan Eggerts eru Hrúthálsar og
Gjáfjöll (1094m) nyrzt.
Kollóttadyngja (1177m; halli 8°; Þvermál 6-7 km) rís 450 m yfir
umhverfið norðvestan Herðubreiðar, syðst hinna svonefndu Herðubreiðarfjalla.
Gígur dyngjunnar er u.þ.b. 800 m í þvermál og 20-30 m djúpur með stampi í
miðju. Hann er 60-70 m djúpur og 150 m í þvermál. Úr honum er
runninn fjöldi eldri hrauna í Útbruna og helluhraun umhverfis Herðubreið.
Rétt norðaustan dyngjunnar er fjallið Eggert. Vestan hans eru
Hrúthálsar, lágur og eggjóttur fjallgarður, sem nær norður að Gjáfjöllum.
Gróðurlendið milli Eggerts og dyngjunnar er kallað Hrútsrandir.
Bræðrafell er í suðurjaðri dyngjunnar (skáli FA 1977; tekur 12 manns).
Herðubreiðartögl eru sunnan Herðubreiðar, 8 km langur móbergsrani.
Milli hans og Herðubreiðar er skarð, sem annaðhvort er gengið eða ekið að
uppgöngustað Herðubreiðar. Töglin ná 450 m hæð yfir umhverfið.
Eftir stofnun þjóðgarðsins Vatnajökuls hinn 7. júní 2008
urðu Herðubreiðarlindir eitt aðsetra þjóðgarðsvarða.
Nýidalur
133 km, Kverkfjöll
62
km, Dyngjufjöll
29 km
<Herðubreiðarlindir>
Hrossaborg
60 km, Mývatn 103 km. |