Hrísey, Eyjafjörður,

Meira um Ísland


Gönguleiðir Ísland


HRÍSEY

FERÐAVÍSIR

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Hrísey er önnur stærsta eyjan við Ísland. Syðst á henni er lítið þorp, sem byggir afkomu sína af fiskveiðum, fiskvinnslu og ferðaþjónustu. Norðar er einangrunarstöð, m.a. fyrir gæludýr, en einnig eru þar nautgripablendingar af Limosine, Aberdeen Angus og Galloway kynjum og er vinsælt hjá ferðamönnum að fara út í Hrísey og gæða sér á nautakjöti.

Eyjan er tilvalin til gönguferða og fuglaskoðunar. Allir fuglar eiga sér þar griðland og það er bannað að halda hunda og ketti í eyjunni. Tilraunir með skógrækt vítt og breitt og æðarvarp á norðurhluta eyjarinnar. Eyjan dregur til sín marga ferðamenn ár hvert og hafa margir eyjaskeggjar atvinnu þar af.

Hrólfssker er 4,5 sjómílum norðan Hríseyjar.  Það er úr stuðlabergi, stendur 6 m.y.s. og á því er viti, sem var byggður 1951.

.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM