|
Húsavík er kaupstaður við innanverðan Skjálfanda að austanverðu. Fiskvinnsla og
útgerð hefur verið ein af stoðum atvinnulífisins ásamt með verslun og þjónustu
við nágrannasveitir. Vinnsla landbúnaðarafurða er og stór þáttur í atvinnulífinu
og eru þar framleiddar landsþekktar kjöt- og mjólkurvörur. Elzta kaupfélag landsins
var stofnað á Húsavík árið 1882. Hótel og önnur góð gistiaðstaða eru á
staðnum og þjónusta við ferðamenn eins og hún gerist best. Hvalaskoðunarferðir frá Húsavík eru
löngu þekktar hérlendis sem og víðast annars staðar í heiminum og kemur fjöldi
íslenskra og erlendra ferðamanna til Húsavíkur gagngert til að skoða
hvali. Árangurinn í þessum ferðum hefur orðið til þess, að bærinn
er nú kallaður: „Hvalahöfuðborg heimsins”. Hvalamiðstöðin
dregur til sín tugi þúsunda gesta ár hvert.
Stutt er
í eina af þekktustu laxveiðiá landsins, Laxá í Aðaldal, en einnig býðst veiði í
vötnum og öðrum ám í nágrenninu. Fjölmargir áhugaverðir staðir eru í nágrenni
Húsavíkur og má t.d. nefna Tjörnes, hvar finna má skeljar í berglögum vel fyrir
ofan sjávarmál. Skammt er til Mývatns,
Kelduhverfis, Jökulsárgljúfra og annnarra áhugaverðra staða frá
Husavík.
Akureyri 91
km,
Mývatn
54 km um Kísilveg, 76 km
um Reykjadal,
<Húsavík>
Kópasker
100 km.
.
|