|
Við getum kallað Ísafjörð höfuðstað Vestfjarða, þar sem
lífið snýst eiginlega eingöngu um fiskveiðar og fiskvinnslu. Sigling með
sérútbúnum sjóstangaveiðibátum í hinu ótrúlega fagra landslagi Djúpsins er
ævintýri út af fyrir sig, svo ekki sé talað um gjöful fiskimið.
Það
er hægt að leigja þessa báta til sérstakra skoðunarferða í Jökulfirði,
Ísafjarðardjúp og á Hornstrandir. Aflinn er eign veiðimannanna.
Ísafjörður er 494 km frá Reykjavík um Hvalfjarðargöng. Flugtíminn frá
Reykjavík er u.þ.b. 45 mín. |