|
Við
boranir á Austurlandi kom í ljós, að gangberg er u.þ.b. 50% bergs
á 3 km dýpi. Á
Austurlandi eru a.m.k. 14 megineldstöðvar. Líklega eru
Austfirðir elzti hluti landsins. Elzta berg á yfirborði við
Gerpi er u.þ.b. 16 milljóna ára.
Mesta jökulrof ísaldar var 2 - 3
km. Það olli því, að
innskot, kvikuhólf og kvikuþrær
urðu að yfirborði landsins, þegar ísaldarjökullinn hvarf.
Jarðskorpan er sveigjanleg og rís við minnkun fargsins. Líklega grynnist
innsiglingin í höfninni á Höfn í Hornafirði stöðugt vegna þess,
að Vatnajökull er að minnka.
Jarðfræðilega athyglisverðir
staðir á Austurlandi eru m.a.
Teigarhorn, Eystra Horn, Vestra Horn, Borgarfjörður
eystri,
Loðmundarfjörður, Breiðdalur. |