|
Reykjanesbeltið
er kallað rekbelti (Rift Zone; þóleiít-berg).
Fossvogslögin
eru u.þ.b. 10000 ára.
Þar sjást sjávarsetlög með steingerðum skeljum og kuðungum
frá síðasta hlýskeiði ísaldar í 4-5 m háum sjávarbökkum.
Öskjuhlíð:
Þar er að finna fjölbreytta jarðsögu seinni hluta
ísaldar.
Öskjuhlíð var eyja við hærri sjávarstöðu fyrir u.þ.b.
tíuþúsund árum.
Þess sjást merki í 43 m hæð yfir sjó í hlíðum Öskjuhlíðar,
þveginn jökulruðningur og lábarðir hnullungar.
Reykjanes:
Jarðskjálftar tíðir.
Eldstöðvakerfin fjögur á skaganum eru oft greind á
eftirfarandi hátt: Reykjanes
– Grindavík – Vogar, Krýsuvík – Trölladyngja, Brennisteinsfjöll
– Bláfjöll og Hengill – Selvogur.
Fjögur til fimm söguleg gos á Reykjanesi á tímabilinu
875 - 1340 og hraun u.þ.b. 16 talsins.
Hraun við Hlíðarvatn frá 1340. Ögmundarhraun frá 1150. Hraun efst í Heiðmörk og Í Bláfjöllum u.þ.b. 1000 ára.
Svínahraun gæti verið kristintökuhraunið
frá 1000.
Svartahraun við Bláa lónið frá 1226.
Kapelluhraun frá 1150. Afstapahraun
frá sögulegum tíma. Stampahraun
og Arnarseturshraun frá 1226. Sjá Jökul frá 1988 (kort af Reykjanesi), Eldfjallafræði
eftir Decker og Decker, nýjustu útgáfu Jarðfræði Þorleifs
Einarssonar, Náttúrufræðingurinn 52 (80-86); 53 (13-60); 53 (53-85);
54 (77-85); 54 (149-154) eftir Svein Jakobsson, Acta Naturalia Islandica
(Náttúrufræðistofnun); The Petrology of recent rocks in the eastern
volcanic zone 1979 eftir Svein Jakobsson.
Búrfellshraun er ca. 7200 ára (C14), gæti verið
eitthvað yngra vegna skekkjuvalds C14 aðferðarinnar, sem er óþekktur.
Þórsberg
Í
Setbergslandi stendur á gömlu sjávarmörkunum.
Sjávarmörk í Garðabæ voru 48m yfir núverandi
sjávarstöðu, ca 43m í Öskjuhlíð og 38m á Hvaleyrarholti.
Þessu olli ísfarg jökulskeiðanna.
Grímshóll á Kvíguvogastapa er u.þ.b. 70m hár og stóð aðeins
blákollurinn upp úr sjó. Reykjanes
reis fyrr en Reykjavíkursvæðið, þar eð ísa leysti þar fyrr.
Þórsberg í Setbergslandi stendur á gömlu sjávarmörkunum.
Milli
álversins og fyrrum fiskeldisstöðvar (nú gámafyrirtæki) er grágrýtishelluhraun.
Kapellu- eða Nýjahraun
rann á fyrri hluta 11. aldar (1010-1020).
Heilög Barbara, verndari ferðamanna, jarðfræðinga og málmbræðslumanna.
Lindir austan álvers gáfu Straumsvík nafn (nú listamannamiðstöð).
Einnig miklar lindir austan Straumsvíkur.
U.þ.b. 52% Reykjanesskagans
(mælt úr botni Kollafjarðar til Þorlákshafnar) er þakinn hraunum,
sem runnu eftir síðasta skeið ísaldar (43 km²).
Flest fjöll, t.d. Keilir, eru úr móbergi frá síðasta
kuldaskeiði.
Hrútagjárdyngjuhraun
ná frá Hvaleyrarholti að Vatnsleysuströnd (Vatnsleysuvík). Þar taka við
Þráinsskjaldarhraun (Vatnsleysuhraun).
Skjaldlögun austan Fagradalsfjalls er dyngja.
Dalur milli dyngnanna. Þar
eru Afstapahraun (apal), áður nefndt Arnstapahraun.
Eldra Hraun undir, en þar er líka frá sögulegum tíma (landnámslagið
er undir því). Það eru
u.þ.b. 12 söguleg hraun á skaganum, en litlar skráðar heimildir eru
til um tilurð þeirra. Ástæður eru meðal annars þær, að bækur hurfu úr Viðeyjarklaustri.
Þeim var rænt og hurfu í flutningi á 17. öld (skipstapi).
Þráinsskjaldarhraun
runnu við hærri sjávarstöðu skömmu eftir síðasta kuldaskeið.
Það sést á rúlluðu grjóti ca 5m ofar núverandi sjávarstöðu
(9000 ára). Þráinsskjöldur
er bunga austan Fagradalsfjalls (9000-10000 ára).
Erfitt er að ákveða hvenær kuldaskeiði lauk hér, áætlað
fyrir 9000-10000 árum.
Á
Vatnsleysuströnd eru elztu hraunin.
Stöðugar og hægfara hreyfingar hafa valdið miklum sprungum í
þeim. Nýrri hraun ofan á
fela líka eldri sprungur.
Vogar (áður Kvíguvogar) og Vogastapi
(Kvíguvogastapi; grágrýti). Stakksvogur
á milli.
Misgengi sunnan vegar við Vogastapa, Grímshóll
með vörðu (75m). Lábarið
grjót alls staðar meðfram vegi um Vogastapa.
Vogastapi og Miðnesheiði eru gamlar dyngjur. Keflavíkurflugvöllur er á dyngju. Sandfellshæð er dyngja.
Stapafell myndaðist undir ís eða í sjó.
Þar er mikið bólstraberg með ólívínkristöllum neðst í bólstrunum.
Ástæður fyrir myndun bólstrabergs eru lítt kannaðar en talið
er, að mismunur hitastigs hrauns og vatns og þrýstingur í vatninu
hafi áhrif á myndun þess. Í
bólstrunum er ólívín (meira neðst vegna sökks), plagíóklas og ágít
(svart). Svört lög í Stapafelli eru aska (bendir til blandaðs goss),
sem hefur setzt til í vatni (mjög reglulega lagskipt).
Sprungur liggja víða í gegnum Stapafell. Búið er að fjarlægja slatta af fjallinu til mannvirkjagerðar,
m.a. Keflavíkurflugvallar.
Rauðamelur er fyrrum sjávargrandi, sem
liggur austur úr Stapafelli, myndaður úr efni úr fellinu.
Hann varð til við hærri sjávarstöðu, þegar sjór braut úr
því. Síðan flæddu
hraun. Þau eru úr
Sandfellshæð (4 km³). Hringvegur
liggur um Stapafell.
Súlur heitir tindur vestan Stapafells (móberg).
Píkrítblágrýti (auðugt af ólívíni) er vestan Sandfellshæðar.
Seltjörn, sunnan Vogastapa, er lægsti
hluti sigdals. Sunnan
tjarnarinnar eru berglög, sem hafa snarast til suðurs og hallast á
milli sprungna.
Arnarseturshraun (apal) er á leiðinni til
Grindavíkur. Það er frá
sögulegum tíma sbr. annála úr Skagafirði.
Vallholtsannáll segir frá gosi 1661, en við rannsókn kom í
ljós að landnámslagið (dökkt að ofan og ljóst að neðan) er
undir hrauninu og Kötlulag (1495-1500) er ofan á því.
Hraun við Svartsengi og Grindavík er ca 2400 ára.
Án þess væri engin höfn í Grindavík.
Grindavík fær neyzluvatn frá Svartsengi en fékk áður 12°C
heitt vatn, sem hafði flest einkenni hitaveituvatns.
Sandey
í Þingvallavatni er u.þ.b. 2000 ára, á líkum
aldri og Gráhraun við Nesjavelli.
Leitarhraun, þar sem Raufarhólshelli er að finna, er u.þ.b. 4800
ára.
Stuðlar myndast hornrétt á kólnunarflöt
hrauna. Þar sem rósir og
sólir koma fram í bergi er líklega um gígtappa eða þrönga hraunrás
að ræða, þar sem hraunið hefur kólnað frá öllum hliðum.
Bergið storknar hægast í miðju og verður þéttast þar.
Neyzluvatn liggur í lögum ofan á sjónum
undir hraunum Reykjanesskagans. Gríðarmargar
holur hafa verið boraðar til rannsókna.
Grunnvatnslagið er 35-40m þykkt og endurspeglar landslagið.
Um sprungusvæðum skagans rennur mikið og straumþungt
grunnvatn, ef hitt þrýtur.
Jaðrfræðilega
áhugaverð svæði og staðir á Suðvesturlandi eru m.a. eftirfarandi:
Hengilssvæðið
Svartsengi Eldeyjarboði
Festarfjall
Krýsuvík
Reykjanes
Selatangar
Vatnsleysuströnd Þingvellir
Geirfuglasker
Brennisteinsfjöll Esja
Fossvogslögin
Viðey Bláfjallasvæðið
Arnarseturshraun
Leitarhraun Súlur
Rauðamelur Stapafell Vogar
Þráinsskjaldarhraun
Hrútagjárdyngjuhraun Kapellu-
og Nýjahraun
Seltjörn
Trölladyngja Ögmundarhraun
Öskjuhlíð
Vatnsleysuströnd Krýsuvík Rauðhólar |