|

Eiríksjökull
(1675m) er u.þ.b. 22 km² jökulskjöldur á móbergsstapa með grágrýtisdyngju
á toppi.
Flatarmál sökkuls stapans er u.þ.b. 40 ferkm.
Hann er hæstur fjalla vestanlands. Þetta fjall varð til við
gos undir jökli, sem náði að bræða sig í gegnum ísinn, þannig að
hraun runnu og mynduðu dyngjuna, sem jökullinn hylur.
Nokkrir skriðjöklar ganga niður að norðaustan- og
norðanverðu, s.s. Stórijökull og Brókarjökull.
Eiríksjökull er sunnan Hallmundarhrauns og vestan Langjökuls
og blasir við sjónum í góðu skyggni frá Borgarfirði og suður af
Holtavörðuheiði.
Skarðið milli jöklanna heitir Flosaskarð. Eiríksjökull
freistar margra fjallgöngumanna.
Hann er mjög skriðubrattur og ekki auðgengur af þeim sökum.
Í norðanverðum skriðunum er
Eiríksgnípa, sem sögð er bera
nafn eins Hellismanna, sem bændur í Borgarfirði réðust gegn eftir að
þeir höfðu valdið usla með dvöl sinni í Surtshelli og aðdráttum.
Borgfirðingum tókst að koma þeim að óvörum, er þeir sváfu
í svokallaðri Vopnalág nálægt Helluvaði á Norðlingafljóti.
Einn þeirra, Eiríkur, var eltur upp hlíðar
Eiríksjökuls og fótur höggvinn undan honum.
Hann komst engu að síður undan á handahlaupum, til skips og
úr landi. |