|
Hofsjökull (1760m) er 925 km² hveljökull á miðhálendinu miðju, kenndur við Hof í
Vesturdal í Skagafirði. Fyrrum var hann nefndur eftir Arnarfelli hinu mikla
og hét
Arnarfellsjökull. Hann er þriðji stærsti jökull landsins, um 900 km².
Samkvæmt mælingum, sem Helgi Björnsson gerði á jöklinum, hvílir hann á stóru
eldfjalli með geysistórri og djúpri, ísfylltri öskju. Hofsjökull er tiltölulega
brattur og þar af leiðandi verða ferðamenn að gæta sín vel á sprungum.
Meðal hinna mörgu og
misstóru skriðjökla, sem ganga niður frá jökulhvelinu eru Múlajökull,
Þjórsárjökull,
Klakksjökull,
Nauthagajökull, Blautukvíslarjökull, Blágnípujökull, Sátujökull og fleiri,
sem eru nafnlausir. Mikið vatn kemur fá Hofsjökli á yfirborði, s.s. Blanda,
Jökulsár eystri og vestari, Jökulfall og Þjórsá. Blönduvirkjun,
Sultartangavirkjun og Búrfellsvirkjun eru byggðar að öllu leyti og að hluta
á vatnsbirgðunum, sem eru bundnar í ísmassa jökulsins. Hofsjökull á sér
lítinn nafna austan Vatnajökuls við jaðar Lónsöræfa.
Blágnípa (1068m) er stapi undir jöklinum
vestanverðum, þó einkum að suðvestan. Norðantil eru
eldstöðvar, sem hafa skapað hraun undir jökulurð norðan
þess. Vestan fjallsins er mýrlendið Blágnípuver.
Þar er illt yfirferðar um smávötn og læki. Þar safnast
fjöldi álfta í sárum sumar hvert. Álftavellir eru ofan
versins. Landslag bendir til, að stórt stöðuvatn hafi
verið, þar sem verið er nú. Úr verinu rennur
Blágnípukvísl í Jökulfall við Gýgjarfoss.
Gönguleiðir á jöklinum liggja í allar
áttir. Þær byggjast á ferðaáætlunum viðkomandi
göngumanna, sem eru vitaskuld búnir að skipuleggja þær í
þaula áður en haldið er af stað. Auk nauðsynlegs
útbúnaðar verður að kanna sprungusvæði á leiðunum með því að
fá örugg hnit hjá kunnugum (4x4; Fjallaleiðsögumenn; JÖRFI
o.fl.). |