|
Heinabergsjökull skríður niður
úr Vatnajökli á mörkum Suðursveitar og Mýra.
Hann klofnar um Hafrafell (1008m) í Skálafellsjökul og
Heinabergsjökul. Snjófjall
er norðan Hafrafells. Heinabergsfjöll
eru austan Heinabergajökuls. Undan
honum koma Heinabergsvötn og Kolgríma.
Jökulhlaup úr Vatnsdalsvatni, sem er jökulstíflað, eru
tíð. Talið er, að leiðir Norðlendinga
yfir
Vatnajökul til fiskveiða sunnan jökuls,
hafi legið upp Brúarjökul og niður Heinabergsjökul við Hálsatind um
Staðardal í Suðursveit.
Jöklaferðir
voru stofnaðar árið 1985.
Jöklasel var byggt 1991.
Það
er í 830 m, Pallurinn í 320 m og útsýnisstaður við
Skálafellsjökul í 540 m.
Boðið er upp á jeppa- og snjósleðaferðir á jökulinn og gistingu og
þjónustu í Jöklaseli.
Vegurinn
þangað upp er aðeins 16 km langur en það tekur tæplega 1 klst. að aka
hann hvora leið. Enginn gleymir
fyrstu reynslunni af honum og enginn ætti að reyna að komast upp á
eins drifs bíl. Það fer
eftir veðri, hvar er bezt að stanza á leiðinni, en oft er rétt úr sér í
320 og 540 m hæð, þegar skyggni er gott.
Reglubundin
áætlun
er frá Hornarfirði þangað á sumrin.
Fyrirtækið Jöklajeppar - Ís og ævintýri
býður ógleymanlegar ferðir í jeppum eða á snjósleðum inn á
jökul. Ferðin hefst gjarnan niðri á jafnsléttu við
vegamótin að Smyrlabjargavirkjun, þar sem fólk skilur bíla
sína eftir.
Eftir stofnun
þjóðgarðsins Vatnajökuls hinn
7. júní 2008 varð Heinabergssvæðið eitt aðsetra
þjóðgarðsvarða.
Kolgríma er mikil jökulsá í Suðursveit. Hún var
hættuleg og erfið yfirferðar áður en fyrsta brúin í
Austur-Skaftafellssýslu var byggð yfir hana 1948. Ár
hvert hleypur áin og síðasta brúin, sem á að standa af sér
álagið, var byggð 1977. Hlaupin koma úr Vatnsdalsvatni
undan Heinabergsjökli og ollu oftast miklum skemmdum á
veginum. |