|
KALDIDALUR
(F-550)
Áður en er farið inn á hálendið komið
við hjá næstu upplýsingamiðstöð!
Beittu músinni á
kortið til að stækka!

Kaldidalur er stytztur hinna þriggja höfuðfjallvega landsins
milli Norður- og Suðurlands. Hann liggur á milli Oks og Langjökuls og hæsti hluti hans, efsti
hluti Langahryggjar, liggur í 727 m hæð yfir sjó. Yfirleitt er hann fær flestum
farartækjum þrjá til fimm mánuði á ári. Líkt og hinir eystri fjallvegir landsins
var Kaldidalur mjög fjölfarinn fyrrum, einkum milli efstu bæja í Þingvallasveit og
Borgarfirði. Þetta er fyrsti fjallvegur landsins, sem var ruddur árið 1830. Ofan af
Langahrygg getur útsýni verið gott, s.s. til Prestahnjúks og mynnis Þórisdals, sem
koma fyrir í þjóðsögum og Grettissögu. Syðst á Kaldadal er ein af fáum
beinakerlingum landsins og hún er þónokkuð notuð af mismunandi hagyrtum ferðamönnum
enn þá.
Norðan Kaldadals er tangi milli
jökulsánna Geitár og Hvítár.
Getið er um
allþétta byggð
á Geitlandi á öldum áður. Þar á líka að hafa verið hverinn
Skrifla, sem flutti sig tvisvar um set, fyrst eftir að
blóðug föt manns, sem var veginn blásaklaus, voru þvegin þar. Skrifla endaði síðan
niðri í Reykholti og úr hvernum rennur vatnið í Snorralaug hina fornu.
Skúlaskeið, sem var talið einhver stórgrýttasti vegur landsins, er
nokkuð norðan Langahryggjar. Það varð Grími Thomsen að yrkisefni í
kvæðinu „Skúlaskeið”, sem hann byggði á þjóðsögu og allir urðu að læra
í skóla.
Um Kaldadal eru engar áætlunarferðir nema dagsferðir, sem
ferðaskrifstofur bjóða, aðallega frá Reykjavík, þá einkum
tengdar jöklaferðum í jeppum, snjóbílum eða á snjósleðum.
Gönguleið:
Um heiðina liggur hluti hins svokallaða „línuvegar”, sem hefst
við
Brunnua
á Kaldadalsleið og endar niðri í Haukadal eða á Kjalvegi norðan
Gullfoss er hægt að halda alla leið að
Hagavatni.
Skúlaskeið er torfær og stórgrýttur kafli á
Kaldadalsvegi. Skúli nokkur var dæmdur til lífláts á Alþingi, en
komst undan vegna afbragðshests, Sörla, sem hann reið. Grímur
Thompsen orti af þessu tilefni kvæðið „Skúlaskeið”:
Hann forðaði Skúla undan
fári þungu,
fjöri sjálfs sín hlífði klárinn miður; -
og svo með blóðga leggi, brostin lungu
á bökkum Hvítár féll hann dauður niður.
Sörli var svo heygður í
túninu á Húsafelli og erfi hans var drukkið með virktum.
Þingvellir
<til> Húsafells
65 km um Kaldadal.

 |