|
Keflavíkurflugvöllur
er á Miðnesheiði á Rosmhvalanesi, sem var innan girðingar herstöðvar NATO
(til 2006) Keflavíkurflugvöllur
er einn af 4
alþjóðaflugvöllum landsins, hinir eru Akureyri, Egilsstaðir og
Reykjavík. Bæði innlend og
erlend flugfélög nota Keflavíkurflugvöll í áætlunar- og leiguflugi og þar eru aðalbækistöðvar
Flugleiðaflugsins. Flugstöðvarbyggingin
er kennd við Leif heppna Eiríksson (FLE).
Í henni er fríhöfn fyrir brottfarir og millilendingar með fjölda
verzlana og ein verzlun fyrir komufarþega.
Samkvæmt athugunum er þessi fríhöfn ódýrari en sumar aðrar.
Rétt
austan flugstöðvarinnar er langtíma bílageymsla, sem býður m.a. bílaþvott
og afhendingu bíla við komuna til landsins.
Komufarþegum er boðin ýmis önnu þjónusta að tollskoðun
lokinni, s.s. leigubílar, bílaleiga, rútuferðir til Reykjavíkur (FlyBus), gjaldeyrisskipti,
banki, pósthús og upplýsingamiðstöð.
Einnig er hægt að koma við í bankanum framan við vegabréfaskoðun
á annarri hæð við komuna til landsins.
Vegalengdin til Reykjavíkur er u.þ.b. 50 km. |