|
Sveitarfélögin Keflavík, Njarðvík og Hafnir runnu
saman í eitt sveitarfélag og nefnast nú einu nafni Reykjanesbær. Byggð í
Keflavík og Njarðvík hefur lengi legið saman og voru bæjarmörk ekki
ljós, nema tekið væri eftir skiltum við vegarbrúnir, sem gáfu þau
til kynna. Keflavík var fjölmennasta sveitarfélagið af þessum þremur
og á sér verzlunarsögu frá árinu 1590. Þekktasti
kaupmaðurinn á árum áður var H. P. Duus og stendur enn hluti af húsum hans,
svokölluð Duushús. Þar er nú mjög góður veitingastaður
við smábátahöfnina með bergið andstpænis upplýst, þegar dimma tekur á
kvöldin. Mikil útgerð og öflug fiskvinnsla var
í Keflavík um áraraðir en nú er þjónusta og iðnaður
burðarás atvinnulífs staðarins.
Keflavík er nú
hluti af sameinuðu sveitarfélagi, Reykjanesbæ. Ekki er vitað
hvenær byggð hófst í Keflavík en fyrstu vitneskju um að byggð sé þar er að
finna í annálum, þar sem segir frá Grími Bergssyni, sem vað þar bráðkvaddur
árið 1649, en hann bjó þá í Ytri-Njarðvík. Talið er að verzlun hafi verið í
Keflavík frá því um 1500, en árið 1518 er talað um þýzka kaupmenn þar.
Hansarkaupmenn settust þar að 1579 og sama ár gaf Danakonungur út fyrsta
verzlunarleyfið fyrir staðinn. Við upphaf einokunarverslunar á Íslandi
árið 1602 var kaupmönnum í Kaupmannahöfn afhent Keflavík og mynduðu þeir
samlög um verzlunina. Fyrsti togarinn var keyptur til Keflavíkur árið
1944. Hét hann Hafsteinn. Hann var gerður út frá Hafnarfirði,
vegna slæmra hafnarskilyrða í Keflavík. Fyrsta íshúsið var byggt árið
1897 og fyrsta frystihúsið 1929.
Keflavíkurflugvöllur, stærsti flugvöllur
landsins, lengi vel eini alþjóðavöllurinn, sem nefna tók, er
og góð lyftistöng fyrir atvinnulífið. Ferðaþjónustan
hefur verið í örum vexti, gæðahótel, úrvals
veitingastaðir sem og önnur gisting og tjaldsvæði
hafa sprottið upp. Keflavík hefur
löngum verið nefndur bítlabærinn en þar má segja að sé vagga
rokksins og bítlaæðisins hérlendis. Ein fyrsta, og vinsælasta,
rokkhljómsveit landsins, Hljómar, var stofnuð
í Keflavík og er ávallt kennd við staðinn. Hin árlega Ljósanótt í
Reykjanesbæ nýtur sívaxandi vinsælda.
Reykjavík
48 km
<Keflavík>
Grindavík
20
km,
Bláa lónið 16 km.
Keflavíkurflugvöllur 3 km.
.
|