|
Byggð
myndaðist snemma
í Ólafsvík, enda góð fiskimið úti
fyrir og góð lending. Hafnaraðstaða var bætt mjög um miðja
20. öldina og óx byggðin hratt í kjölfarið. Gamalt
pakkhús frá 1844 er á staðnum og er nú minjasafn.
Til margra ára var blómleg útgerð og fiskvinnsla í Ólafsvík og fjöldi
aðkomufólks sótti vinnu þangað. Fyrrum var mikil verstöð á Hellissandi og
er þar sjóminjasafn, sem geymir m.a. Blika, elzta
áraskip landsins, smíðað 1826.
Bæjarskrifstofur Snæfellsbæjar eru staðsettar á Hellissandi.
Rif var einhver mesta verzlunarhöfn á Snæfellsnesi áður fyrr, en höfnin
eyðilagðist þegar Hólmkelsá breytti farvegi sínum. Góð höfn er nú á
Rifi. Útgerð og fiskvinnsla eru uppistaðan í atvinnulífi Ólafsvíkur,
Hellissands og Rifs. Ólafsvík, Hellissandur og Rif eru
nú hlutar Snæfellsbæjar.
Félagsheimilið Klif var opnað í ágúst 1987 á
300 ára afmæli verzlunar í Ólafsvík. Sigurður
Elínbergsson sá um smíði þess og bæjarstjóri var þá Kristján
Pálsson.
Ólafur belgur nam land inn frá Enni til Fróðár og bjó í
Ólafsvík. Ormur hinn mjóvi kom á skipi sínu í Fróðá.
Hann bjó nokkra vetur á Brimilsvöllum áður en hann rak Ólaf
belb á brott. Síðan bjó hann að Fróðá og nam víkina
gömlu milli Ennis og Höfða.
Styttan í Sjómannagarðinum í Ólafsvík er eftir Guðmund
Einarsson frá Miðdal, föður listamannsins Errós, sem fæddis
í Ólafsvík. Styttan var afhjúpuð á sjómannadaginn
1961.
Samgöngur til og frá austri og vestri um
Búlandshöfða og Enni voru erfiðar og hættulegar.
Þjóðsagan segir, að 19 hafi farizt í Enninu. Aðdýpi er
talsvert við Búlandshöfða, þannig að þar þurfti að ferðast
um snarbrattar brekkur. Hægt var að fara fyrir Enni á
fjöru en var aldrei hættulaust vegna grjóthruns, þótt
Guðmundur biskup góði hefði vígt það. Árið 1963 var
sprengdur vegur í klettabeltið meðfram Enninu en dró ekki
úr hættunni. Núverandi vegur var opnaður árið
1983. Fróðárheiði var löngum eina örugga samgönguleiðin
við Ólafsvík en var oftast lokuð vetrarlangt vegna snjóa.
Eitthvert frægasta og farsælasta skip Snæfellinga var
Svanurinn, sem sigldi áfallalaust í 116 ár. Hann var
smíðaður 1777, 170 rúmlesta briggskip, skrokkur klæddur með
látúni. Hann var þungur undir seglum, en vel búinn og
traust sjóskip. Fólk kom víða að til að fá far með
honum milli Íslands og Danmerkur. Hann slitnaði upp af
legunni í Ólafsvík 1893 og eyðilagðist ásamt fleiri skipum.
Hafnarskilyrði voru þá slæm og vátryggingarfélögin, sem voru
að komast á legg á þessum árum hættu að tryggja skipin í
Ólafsvík. Það varð til þess, að útgerð stærri skipa
lagðist af um tíma í Ólafsvík.
Hellissandur
9 km <Ólafsvík>
Arnarstapi
38 km um Fróðárheiði.
Grundarfjörður
28 km
.
|