|
Austanverð mörk
sveitarfélagsins Ölfus liggja austan Alviðru undir Ingólfsfjalli og um
Ölfusá til sjávar. Vestasti bær er Hlíðarendi og sveitarfélagið
umlykur Hveragerði, þannig að Varmá skilur á milli á kafla, svo að
Garðyrkjuskólinn og sundlagin í Laugaskarði tilheyra Ölfusi. Næst Ölfusárbrú var skiki lagður
til Selfoss 1930 og Hveragerðishreppur undir Vorsabæjarhamri var stofnaður
1946. Sýslumörk ráða á
fjöllum, þannig að Hveradalir og Kolviðarhóll eru innan marka Ölfuss.
Kirkjustaðir sveitarfélagsins eru
Hjalli, Kotströnd og Þorlákshöfn.
Mikið er af góðum reiðleiðum um sveitarfélagið og ferðaþjónusta með
veitingastöðum bæði við ströndina og í sveitinni, hestaleigu og veiði í
vötnum.
Vegasamgöngur um Ölfus eru góðar og einhverjar mestu og beztu
samgöngubætur síðari ára voru opnun vegarins um Þrengsli (14,8 km)
og bygging brúar yfir ósa Ölfusár, sem var lokið 1988 (360m).
Það kemur á óvart, hve margt forvitnilegt og áhugavert er að finna
innan marka Ölfus eins og sjá má undir hnappinum „Áhugaverðir staðir”
hér að neðan.
.
|