|
Búðareyri er kauptún innst við norðanverðan Reyðarfjörð og nefnist nú
einfaldlega Reyðarfjörður. Frá náttúrunnar hendi eru mjög góð hafnarskilyrði
við Reyðarfjörð og er því útgerð og fiskvinnsla uppistaðan í atvinnulífi
staðarins.
Sunnan fjarðar er eyðibýlið Hrúteyri.
Þar og á Holtastaðaeyri höfðu Norðmenn höfuðstöðvar sínar
fyrir síldarútveg 1883-1890.
Þá var fjörðurinn fullur af síld og verzlun á Hrúteyri.
Hafnarskilyrðin ollu því, að Bretar hernámu Reyðarfjörð í síðari
heimstyrjöld og höfðu þeir þar fjölmennt setulið og finnast stríðsminjar
víða. Unnið er að kortlagningu minjanna og hefur þar nú verið opnað
stríðsminjasafn.Við bæinn er lítil tjörn - Andapollurinn - og er eldislaxi
sleppt þar í reglulega og fást keypt leyfi til að veiða laxinn.
Við Andapollinn eru og tjaldstæði Reyðfirðinga en hótel,
gistiheimili, farfuglaheimili og
veitingastaðir eru inni í sjálfum bænum. Tilkomumikið útsýni er frá
Grænafelli en þar er mjög gróðursælt og liggur merkt gönguleið um kjarri
vaxna hlíðina upp á fellið. Við fellið er góð aðstaða til íþrótta
og útivistar. Vegalengdin frá Reykjavík er 677 km
um suðurströndina.
Eskifjörður 15 km <Reyðarfjörður>
Fáskrúðsfjörður
21 km. Egilsstaðir 34 km.
.
|