|
Skagafjörður er aðalmiðstöð flúðasiglinga á
landinu með beztu árnar í Evrópu til slíkra ferða.
Skagfirðingar státa líka af beztu hestum landsins og eru
ófeimnir við að segja frá því.
Fulltrúi Afþreyingarfélagsins bíður farþega á flugvellinum
og fer með þá í einnar klukkustundar reiðtúr frá Varmahlíð
um fagurt landslagið. Eftir matarhlé í Varmahlíð er
haldið í ógleymanlega flúðasiglingu á Vestari-Jökulsá.
Að því ævintýri loknu gefst kostur á sundi og/eða afslöppun
í heitum pottum sundlaugarinnar í Varmahlíð áður en haldið
er til baka út á flugvöll til heimflugs.
Ferðaframboð: Þriðjudagar og
föstudagar frá 1 júní. til 31. ágúst.
Verð: kr.
31,500.- á mann.
Börn 2-11 ára: 50% afsláttur.
Yngri börn: 90% afsláttur.
Lengd ferðar: 10 klst.
Innifalið:
Flug fram og til baka, Reykjavík-Sauðárkrókur-Reykjavík.
Rúta til/frá flugvelli, hestaferð, flúðasigling og aðgangur
að sundlaug.
Ekki innifalið:
Hádegisverður og annað matarkyns.
Ferðina er hægt
að bóka sími:
562-4200
ernir@ernir.is |