|
Þar
er rekin mikil útgerð og höfðu Skagstrendingar frumkvæði að smíði
fyrsta íslenska frystitogarans, sem flestir töldu glapræði á þeim tíma.
Frystitogararnir hafa að mestu tekið við hlutverki frystihúsanna
en rækjuvinnsla sér fólkinu í landi fyrir vinnu.
Léttur iðnaður er á Skagaströnd og góð verslunarþjónusta. Lengi var sagt að Skagstrendingur hf., útgerðarfélag, hefði
komið Skagaströnd á kortið, en hinn íslenski kúreki, Hallbjörn
Hjartarson bætti um betur á
eftirminnilegan hátt. Veitingahús
hans, Kántrýbær, er löngu landsfrægt og hróður þess hefur borizt
um víða veröld og heldur Hallbjörn "kántrýhátíð" árlega við miklar
vinsældir. Einnig rekur hann útvarpsstöð sem eingöngu leikur sveitatónlist
og þá helst frá mið- og suðurríkjum Bandarríkjanna.
Margt fleira er í boði á Skagaströnd og er þess virði að
beygja út af þjóðvegi nr. 1 og heimsækja staðinn. Spákonufellið
(646m) setur svip á bæinn. Efst
á því er grágrýtishamraborg, Spákonufellsborg, sem staðarmenn nefna
gjarnan Borgarhaus. Bezta
uppgangan á fellið er að norðanverðu og uppi á Borgarhaus er dagbók
í vörðu.
Spákonufellshöfðinn var friðlýstur sem fólkvangur 1980.
Hann er lábarinn gostappi úr blágrýti, prýddur stuðlabergi.
Gamli verzlunarstaðurinn, Höfðakaupstaður, var rétt við höfðann.
Ganga um hann tekur u.þ.b. klukkustund og útsýni ágætt af
honum. |