|
Austustu bæir undir Eyjafjöllum eru Eystri- og Ytri-Skógar.
Þar hóf héraðsskóli Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga starfsemi 1949. Þar er
sundhöll og skólinn er nýttur sem sumarhótel. Sama ár var opnað byggðasafn sömu
aðila að Skógum. Frumkvöðull þess og safnvörður síðan er Þórður Tómasson
(28/4 '21). Hann hefur byggt safnið upp frá grunni og hefur m.a. fært út kvíarnar
með söfnun gamalla húsa, sem hafa verið endurreist á lóð safnsins. Kirkjan er
nýsmíði en munir hennar eru gamlir. Þórður hefur ekki látið duga að bjarga
gömlum gripum frá glötun, heldur skrifað margar bækur um þjóðleg fræði. Hann
varð heiðursdoktor við H.Í. 1996. Safninu hefur vaxið fiskur um hrygg fyrir
elju Þórðar og árið 1998 var skrifað undir samning um byggingu samgöngusafns að
Skógum, sem var opnað 2002.
Enginn ætti að láta hjá líða að skoða Skógasafn. Skógasandur er
geysimikið flæmi og nær alveg niður að sjó. Næst veginum við Skóga er mikil
nýrækt á sandinum og niðri við sjó er oftast hægt að komast í návígi við
selinn. Frá Skógum til Þórsmerkur er vinsæl gönguleið yfir
Fimmvörðuháls. Austurleið-Kynnisferðir hf. heldur uppi áætlun að Skógum.
Vegalengdin frá Reykjavík er
154 km.
Hvolsvöllur 48 km
<Skógar>
Vík 33 km.
.
|